Fotbolti.net
08.07.16 - 17:33
Arnar Daði Arnarsson

Árni Vilhjálms í Breiðablik (Staðfest)

Árni Vilhjálms í Breiðablik (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik hefur fengið Árna Vilhjálmsson á láni frá norska úrvalsdeildarliðinu, Lilleström. Þetta er tilkynnt á Blikar.is.

Árni verður löglegur með Blikum 15. júlí þegar félagaskiptaglugginn hér heima opnar. Hann verður því löglegur með Breiðablik í leiknum gegn Fjölni, sunnudaginn 17. júlí.
Lánssamningurinn gildir út þessa leiktíð.

„Það þarf vart að taka það fram hve góð tíðindi þetta eru fyrir Blikaliðið. Okkur hefur gengið illa að skora að undanförnu en Árni ætti að bæta heldur betur við vopnabúrið fram á við. Árni fór til Lilleström í janúar í fyrra en hefur ekki átt fast sæti í norska liðinu,\" segir í fréttinni á Blikar.is

Árni sem er uppalinn í Breiðablik er fæddur árið 1994. Hann var markahæsti leikmaður Blikaliðsins árið 2014 þegar hann setti 10 mörk í 20 leikjum. Eftir það gekk hann í raðir Lilleström í Noregi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.