08.07.16 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Atletico lánar Matias Kranevitter til Sevilla (Staðfest)

Kranevitter er farinn til Sevilla

Mynd: Getty Images

Kranevitter er farinn til Sevilla

Mynd: Getty Images
Atletico Madrid hefur samþykkt það að lána miðjumanninn Matias Kranevitter til Sevilla út næstu leiktíð.
Leikmaðurinn fer í læknisskoðun hjá Sevilla þegar hann kemur aftur úr fríi sínu í Argentínu. Frá þessu greindi Atletico í yfirlýsingu.
Hinn 23 ára gamli Kranevitter samdi við Atletico síðasta sumar og hóf að spila með aðallinu undir lok desember. Hann var í hópnum hjá Argentínu sem fór í úrslit Copa America fyrr í sumar, en þar tapaði liðið fyrir Síle.
Sevilla staðfesti einnig lánssamninginn á Kranevitter í yfirlýsingu.
Kranevitter spilaði í átta ár með River Plata í Argentínu áður en hann fór til Atletico. Hjá River Plate kynntist hann því vel að vinna titla og spurning hvort hann taki það með sér til Sevilla.
Jorge Sampaoli tók við Sevilla í sumar og Kranevitter er þriðji leikmaðurinn sem hann fær til Sevilla. Áður hafði félagið samið við Hiroshi Kiyotake og Pablo Sarabia.

Kranevitter llega cedido por una temporada #SevillaFC https://t.co/ZOg0Dms1N6 pic.twitter.com/lVbubAfl3k
— Sevilla Fútbol Club (@SevillaFC) July 7, 2016
Heimild: ESPN