Fotbolti.net
08.07.16 - 09:35
Magnús Már Einarsson

Klopp gerir nýjan sex ára samning við Liverpool (Staðfest)

Klopp gerir nýjan sex ára samning við Liverpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Juren Klopp, stjóri Liverpool, hefur skrifað undir nýjan sex ára samning við félagið.

Klopp tók við Liverpool í október í fyrra en hann gerði þá samning til 2018 með möguleika á árs framlengingu.

Þessi 49 ára gamli Þjóðverji sér fyrir sér að starfa hjá Liverpool í mörg ár og forráðamenn félagsins ákváðu að bjóða honum langan samning.
„Við erum bara rétt að byrja ferðalagið okkar,\" sagði Klopp.

Liverpool fór í úrsilt Evrópudeildarinnar og enska deildabikarsins undir stjórn Klopp á síðasta tímabili. Þá endaði liðið í áttunda sæti í ensku úrvalsdeildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.