mán 08. júlí 2019 09:41
Magnús Már Einarsson
Hrafnhildur og Dagný í Selfoss (Staðfest)
Hrafnhildur í leik með Selfyssingum í fyrra.
Hrafnhildur í leik með Selfyssingum í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kvennalið Selfoss hefur styrkt sig með tveimur leikmönnum frá því félagaskiptaglugginn opnaði þann 1. júlí sl.

Varnarmaðurinn Hrafnhildur Hauksdóttir og markvörðurinn Dagný Pálsdóttir hafa gengið til liðs við félagið en þær þekkja báðar vel til á Selfossi.

Hrafnhildur, sem er 22 ára, hefur leikið 82 leiki fyrir Selfoss í efstu deild og bikar frá árinu 2013. Hún lék með Val sumarið 2017 og var lánuð á Selfoss í fyrrasumar áður en hún hélt á vit ævintýranna í Svíþjóð og spilaði með Göteborgs DFF í sænsku C-deildinni.

Dagný, sem er 29 ára, er einnig fyrrum leikmaður Selfoss en hún spilaði hátt í 50 leiki fyrir félagið á árunum 2009 til 2012. Dagný er uppalin hjá Völsungi og hefur einnig leikið með Tindastól og Sindra en hún kemur til Selfoss frá ÍA, þar sem hún hefur leikið einn leik í Inkassodeildinni í sumar.

Selfoss er í 4. sæti í Pepsi Max-deild kvenna en liðið mætir ÍBV í Suðurlandsslag á morgun.

Hrafnhildur og Dagný eru mættar í Draumaliðsdeild Toyota. Komast þær í þitt lið?
Athugasemdir
banner
banner
banner