Spænski sóknarmaðurinn Ignacio Gonzalez Martinez er genginn til liðs við Hött/Huginn og mun leika með liðinu í 3. deildinni út tímabilið.
Nacho eins og hann hefur verið kallaður, hefur spilað með Hetti í 2. deildinni undanfarin tvö ár.
„Síðustu tvö timabil skoraði hann 18 mörk í 37 leikjum auk þess að leggja upp helling af mörkum en Nacho er leikinn og áræðinn auk þess að vera drengur góður," segir á Facebook síðu Hattar/Hugins.
„Gleðitíðindi og vonandi að koma hans gefi liðinu auka kraft!"
Höttur/Huginn gerði 1-1 jafntefli við topplið KV um helgina en næsti leikur liðsins er gegn botnliði KH á fimmtudaginn.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir