Asenjo farinn frá Villarreal eftir níu ár (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Spænski markvörðurinn Sergio Asenjo er farinn frá Villarreal á frjálsri sölu eftir níu ár hjá félaginu.
Asenjo var aðalmarkvörður hjá Villarreal en missti byrjunarliðssætið til hins argentínska Geronimo Rulli á síðustu leiktíð.
Asenjo spilaði yfir 250 leiki fyrir Villarreal en þar áður var hann hjá Atletico Madrid eftir að hafa komið upp í gegnum akademíuna hjá Real Valladolid.
Núna heldur Asenjo aftur heim til Valladolid eftir þrettán ára fjarveru en markvörðurinn vann Evrópudeildina þrisvar sinnum og spænska bikarinn einu sinni á ferlinum.
Asenjo á einn A-landsleik að baki fyrir Spán eftir að hafa verið aðalmarkvörður í unglingalandsliðunum. Hann er 33 ára gamall, aðeins tveimur árum eldri heldur en David de Gea.
Hann er mikill liðsstyrkur fyrir Valladolid sem er komið aftur upp í efstu deild í fyrstu tilraun eftir að hafa fallið í fyrra.
Brasilíska goðsögnin Ronaldo á rúmlega 80% hlut í Real Valladolid.
Asenjo er þriðji leikmaðurinn til að ganga í raðir Valladolid í sumar eftir að félagið keypti Monchu frá Granada og Ivan Sanchez frá Birmingham.
