Fotbolti.net
08.07.22 - 08:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Bergwijn í Ajax (Staðfest)

Steven Bergwijn.

Steven Bergwijn.

Canon

Mynd: Getty Images

Ajax er búið að ganga frá kaupum á kantmanninum Steven Bergwijn og kemur hann til félagsins frá Tottenham.
Bergwijn, sem er hollenskur landsliðsmaður, mun kosta Ajax 26,4 milljónir punda.

Bergwijn er 25 ára gamall og kom til Tottenham frá PSV Eindhoven fyrir tveimur árum.

Leikmaðurinn náði aldrei að festa sæti sitt í byrjunarliðinu og eftir að Antonio Conte tók við varð ljóst að hann ætti ekki framtíð hjá félaginu.

Bergwijn skrifar undir fimm ára samning við hollensku meistarana og kemur án efa til með að reynast þeim vel í framhaldinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.