Fotbolti.net
08.07.22 - 18:22
Brynjar Ingi Erluson

Clément Lenglet til Tottenham á láni frá Barcelona (Staðfest)

Clement Lenglet er mættur

Clement Lenglet er mættur

Canon

Mynd: Heimasíða Tottenham

Franski varnarmaðurinn Clément Lenglet kvittaði í dag undir eins árs lánssamning við enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham en hann kemur frá Barcelona.
Þessi 27 ára gamli varnarmaður gekk í raðir Barcelona frá Sevilla árið 2018 fyrir 35 milljónir evra.

Lenglet var fastamaður í liði Barcelona fyrstu þrjú tímabilin með liðinu en fékk sinn skerf af gagnrýni á síðasta ári fyrir nokkur afdrifarík mistök í vörninni.

Hann missti sæti sitt í liðinu á síðustu leiktíð og þegar hann spilaði fékk hann sárafáar mínútur til að sanna sig.

Nú er hann genginn í raðir Tottenham á láni frá Barcelona út leiktíðina.

Þetta er fimmti leikmaðurinn sem Tottenham fær til félagsins í sumar og má þá gera ráð fyrir því að enski hægri bakvörðurinn Djed Spence sé næstur inn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.