Fotbolti.net
08.07.22 - 19:41
Brynjar Ingi Erluson

Everton lánar tvo markverði (Staðfest)

Joao Virginia er farinn til Cambuur

Joao Virginia er farinn til Cambuur

Canon

Mynd: EPA

Harry Tyrer og Joao Virginia, markverðir Everton, eru farnir frá félaginu á láni út leiktíðina.
Tyrer er tvítugur og uppalinn hjá félaginu en hann mun spila með Chester, sem leikur í sjöttu efstu deild, á næsta tímabili.

Hann var í hóp í tveimur leikjum í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð er Jordan Pickford var meiddur.

Portúgalski markvörðurinn Joao Virginia heldur þá enn einu sinni á lán frá félaginu en hann mun spila með hollenska félaginu Cambuur næsta árið.

Hann var á láni hjá Sporting Lisbon á síðasta ári en þessi 22 ára leikmaður hefur verið á mála hjá Everton frá 2018. Þetta er þriðji lánssamningurinn sem hann gerir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.