08.07.22 - 20:05
Brynjar Ingi Erluson
Gary og Gonzalo vilja fá Viðar Örn heim í Selfoss

Viðar Örn Kjartansson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viðar Örn Kjartansson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viðar Örn Kjartansson er laus allra mála eftir að hann náði samkomulagi við norska félagið Vålerenga um að rifta samningnum en það verður fróðlegt að sjá hvert næsta skref hans verður.
Framherjinn knái er uppalinn Selfyssingur og spilaði sex tímabil með liðinu áður en hann fór til Fylkis árið 2013.
Eftir gott tímabil með Fylki var hann seldur til Vålerenga og þá fór atvinnumannaferillinn á flug. Viðar hefur spilað í Kína, Ísrael, Tyrklandi, Rússlandi og Svíþjóð, en óvíst er hvert leið hans liggur nú.
Gary Martin og Gonzalo Zamorano, leikmenn Selfyssinga, kalla eftir því að hann komi heim í Selfoss sem er í baráttu um að komast upp í Bestu deildina.
„Komdu í Selfoss bara," skrifaði Gonzalo á Twitter á meðan Gary var mjög spenntur fyrir þessu mögulega samstarfi.
Viðar hefur spilað 165 leiki fyrir Selfoss og skorað 65 mörk, en hvort þetta sé rétti tímapunkturinn til að koma heim í Selfoss er annað mál.
Sjá einnig:
Viðar Örn laus allra mála (Staðfest)

VOK + BOV tak 🤝 https://t.co/ejRBzySfj8
— Gary martin (@gazbov10) July 8, 2022
Komdu i Selfoss bara 😄 https://t.co/XE2T0dwbgB
— Gonzalo Zamorano (@Gonza_zam9) July 8, 2022