Fotbolti.net
08.07.22 - 18:38
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Luka Jovic til Fiorentina (Staðfest)

Jovic er búinn að skrifa undir hjá Fiorentina

Jovic er búinn að skrifa undir hjá Fiorentina

Canon

Mynd: Heimasíða Fiorentina

Serbneski framherjinn Luka Jovic er genginn í raðir Fiorentina frá Real Madrid en þetta kemur fram í tilkynningu frá Flórensarliðinu í kvöld.
Jovic, sem er 24 ára gamall, kom til Real Madrid frá Eintracht Frankfurt fyrir þremur árum fyrir 60 milljónir evra og gerði hann þá sex ára samning.

Serbinn náði sér aldrei á strik í hvítu treyjunni og skoraði aðeins þrjú mörk í 51 leik.

Hann var lánaður til Frankfurt í janúar á síðasta ári og gerði þar fjögur mörk í átján leikjum áður en hann snéri aftur til Madrídinga.

Jovic vonaðist til að komast í gang á síðustu leiktíð en það gekk ekki eftir og gerði hann aðeins eitt mark í nítján leikjum.

Nú vonast hann til að fá endurnýjun lífdaga hjá Fiorentina en hann er genginn í raðir félagsins fyrir. Ítalskir miðlar hafa greint frá því að Fiorentina fær Jovic á frjálsri sölu og gerir hann langtímasamning.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.