08.07.22 - 11:56
Elvar Geir Magnússon
Wilshere leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Jack Wilshere, fyrrum miðjumaður Arsenal, West Ham og enska landsliðsins, hefur tilkynnt að skórnir séu komnir á hilluna. Hann er þrítugur.
Wilshere varð stjarna ungur að árum hjá Arsenal en hann vann FA-bikarinn tvívegis hjá félaginu. Hann lék sinn fyrsta aðalliðsleik fyrir Arsenal sextán ára gamall og lék 125 leiki í treyjunni.
Hann lék 34 landsleiki fyrir England og spilaði einnig fyrir Bournemouth.

Það fór síðan að halla undan fæti á ferli hans en hans síðustu leikir voru með danska liðinu AGF fyrr á þessu ári.
Í færslu á Instagram segir Wilshere að ferill sinn hafi verið mikið ævintýri og hann hafi upplifað drauminn með því að bera fyrirliðabandið hjá Arsenal og spila fyrir England á HM. Hann segir að það hafi verið erfitt undanfarin ár að sjá feril sinn vera að fjara út en horfi stoltur til baka.
Hann hefur verið að mennta sig í þjálfun og segist telja sig hafa enn margt fram að færa í fótboltanum.

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: EPA

Mynd: EPA