Fotbolti.net
08.07.26 - 18:29
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Dragusin orðinn samherji Alberts (Staðfest)

Dragusin orðinn samherji Alberts (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Fiorentina er búið að ganga frá félagaskiptum fyrir rúmenska varnarmanninn Radu Dragusin.
Dýrasti Rúmeni sögunnar fer aftur til Ítalíu
TENGT EFNI

Dýrasti Rúmeni sögunnar fer aftur til Ítalíu

Dragusin kemur til Fiorentina á lánssamningi frá Tottenham sem inniheldur árangurstengda kaupskyldu.

Dragusin var meðal bestu miðvarða ítalska boltans þegar hann var hjá Genoa en honum mistókst að standast væntingarnar sem gerðar voru til hans eftir félagaskipti í ensku úrvalsdeildina.

Dragusin náði sér ekki almennilega á strik með Tottenham og hjálpuðu meiðslavandræði ekki.

Tottenham borgaði um 25 milljónir evra til að kaupa Dragusin úr röðum Genoa á sínum tíma og varð hann þar með dýrasti rúmenski leikmaður fótboltasögunnar. Talið er að Fiorentina greiði um 20 milljónir til að fá Dragusin aftur í Serie A.

Þar mun hann leika með Alberti Guðmundssyni, ef Albert verður ekki seldur í sumar.

Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Dragusin orðinn samherji Alberts (Staðfest)
Canon

Mynd: Fabrizio Romano/X

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.