Fotbolti.net
08.07.26 - 18:55
Ívan Guðjón Baldursson

Harry Wilson kominn til Leeds (Staðfest)

Harry Wilson kominn til Leeds (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Leeds United er búið að krækja í kantmanninn Harry Wilson á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Fulham rann út í sumar.
Wilson gerir fjögurra ára samning við Leeds eftir að hafa verið hjá Fulham síðustu fimm ár, en Wilson hefur einnig leikið fyrir Liverpool og Bournemouth á sínum ferli.

Hann er 29 ára gamall og með 69 landsleiki að baki fyrir Wales.

Wilson hefur í heildina komið að 50 mörkum í 156 leikjum í ensku úrvalsdeildinni.

Hann skoraði 11 mörk og gaf 8 stoðsendingar í 41 leik á síðustu leiktíð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.