Fotbolti.net
08.07.26 - 17:00
Elvar Geir Magnússon

Ljónynjurnar í Lundúnum krækja í Putellas (Staðfest)

Alexia Putellas.

Alexia Putellas.

Canon

Mynd: EPA

Hertz
Alexia Putellas er orðin leikmaður London City Lionesses í enska boltanum. Putellas hefur tvisvar unnið Ballon d’Or gullboltann og kemur á frjálsri sölu eftir fjórtán ár hjá Barcelona þar sem hún vann Meistaradeildina fjórum sinnum.

Putellas er einn besti leikmaður sem hefur komið í ensku kvennadeildina og er þar í flokki með Sam Kerr, Alex Morgan og Carli Lloyd.
Lundúnaliðið hafnaði í sjötta sæti efstu deildar Englands á sínu fyrsta tímabili þar. Félagið er í eigu bandarísku viðskiptakonunnar Michele Kang sem er dugleg að setja pening í félagið.

„Ég er í skýjunum með að hefja þennan nýja kafla á ferlinum. Metnaður félagsins er mikill og ég hlakka til að berjast um titla með því," segir Putellas sem var kynnt í New York.

Putellas er spænsk landsliðskona sem skoraði 234 mörk í 513 leikjum fyrir Barcelona. Hún hjálpaði liðinu að vinna tíu deildartitla og tíu spænska meistaratitla.

Ljónynjurnar hafa verið duglegar á markaðnum og meðal annars fengið enska markvörðinn Mary Earps frá Paris S-Germain, danska varnarmanninn Janni Thomsen frá Utah Royals og þýska framherjann Nicole Anyom frá Eintracht Frankfurt.

Þá er spænski varnarmaðurinn Mapi León og liðsfélagi hennar Salma Paralluelo einnig orðaðar við félagið.


Í landsleik gegn Íslandi.

Í landsleik gegn Íslandi.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.