Fotbolti.net
08.07.26 - 00:00
Elvar Geir Magnússon

Maður dagsins á HM - Þakklátur Guði fyrir mikilvægasta mark ferilsins

„Að geta upplifað stundir sem þessar, ég þakka Guði“

„Að geta upplifað stundir sem þessar, ég þakka Guði“

Canon

Mynd: EPA

Leikmaður dagsins
Argentína átti magnaða endurkomu gegn Egyptalandi í 16-liða úrslitum HM. Argentínumenn voru tveimur mörkum undir þegar þeir komust á bragðið á 79. mínútu og unnu á endanum 3-2 sigur þar sem Enzo Fernandez skoraði sigurmarkið með skalla í uppbótartíma.

„Þetta er mikilvægasta mark ferils míns," sagði Enzo eftir leik. Hann er maður dagsins á HM.

Fyrir fjórum árum var Enzo valinn besti ungi leikmaður HM í Katar en þá skoraði hann í mikilvægum 2-0 sigri gegn Mexíkó.

„Þetta mark er númer eitt og númer tvö er markið gegn Mexíkó. Ég hef haft löngun í þetta mark síðan HM var í Katar. Að geta upplifað stundir sem þessar, ég þakka Guði. Þetta eru forréttindi."
Enzo kórónaði endurkomu Argentínu með glæsilegu skallamarki á þriðju mínútu uppbótartíma, eftir fullkomna fyrirgjöf Lautaro Martínez.

„Þegar boltinn fór inn hugsaði ég um alla fjölskyldu mína í stúkunni, alla stuðningsmennina á vellinum og fólkið heima í Argentínu. Hjarta mitt fylltist af tilfinningum og stolti. Við vitum að öll Argentína styður okkur."

Argentína mun mæta Sviss í 8-liða úrslitum HM.


Orkusalan og Fótbolti.net velja mann dagsins á HM á hverjum degi á meðan mótið er í gangi í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.
Maður dagsins á HM - Þakklátur Guði fyrir mikilvægasta mark ferilsins
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.