Fotbolti.net
08.08.13 - 17:00
Magnús Már Einarsson

Ji-Sung Park til PSV Eindhoven (Staðfest)

Ji-Sung Park til PSV Eindhoven (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

PSV Eindhoven hefur fengið Ji-Sung Park, miðjumann QPR, á láni út tímabilið.
Hinn 32 ára gamli Park kom til QPR frá Manchester United fyrir ári síðan.

Tímabilið var hins vegar martröð hjá Suður-Kóreumanninum en hann var mikið meiddur og þegar Harry Redknapp tók við QPR tók hann fyrirliðabandið af Park.

Park þekkir vel til hjá PSV en hann lék með liðinu frá 2002 til 2005.

Park bætist í hóp leikmanna sem hafa yfirgefið QPR í sumar en á þeim lista eru einnig leikmenn eins og Loic Remy, Djibril Cisse, Christopher Samba og Adel Taarabt

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.