Fotbolti.net
08.08.14 - 11:10
Elvar Geir Magnússon

Guðlaugur Victor Pálsson í Helsingborg (Staðfest)

Guðlaugur Victor Pálsson.

Guðlaugur Victor Pálsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Guðlaugur Victor Pálsson er kominn í Helsingborg. Þessi 23 ára Íslendingur er varnarsinnaður miðjumaður sem hefur víða komið við á stuttum ferli sínum.

Í yngri flokkum var hann hjá Fylki og Fjölni áður en hann hélt til AGF í Danmörku. Eftir tvö ár í Danmörku samdi hann við Liverpool þar sem hann afrekaði það að vera fyrirliði hjá varaliðinu.
Hann var lánaður til Dagenham & Redbridge áður en hann samdi við Hibernian í Skotlandi. Eftir eitt ár þar fór hann til New York Red Bulls og svo til NEC Nijmegen.

Hollenska liðið féll úr úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og Guðlaugur Victor yfirgaf það.

Hann hefur leikið fyrir öll landslið Íslands en hans eini A-landsleikur var vináttuleikur gegn Eistlandi fyrr á þessu ári.

Helsingborg er í ellefta sæti af sextán liðum sænsku úrvalsdeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.