08.08.14 - 10:05
Elvar Geir Magnússon
Hannes Sigurðsson til Sandnes Ulf (Staðfest)

Hannes hefur víða komið við á ferlinum en er uppalinn hjá FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hannes hefur víða komið við á ferlinum en er uppalinn hjá FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóknarmaðurinn Hannes Þ. Sigurðsson er búinn að skrifa undir samning við botnlið norsku úrvalsdeildarinnar, Sandnes Ulf. Samningurinn gildir út tímabilið en frá þessu er greint á heimasíðu félagsins.
Hannes hefur víða komið við á sínum ferli og lék síðast með Grödig í Austurríki.
Hjá Sandnes Ulf hittir hann nafna sinn Hannes Þór Halldórsson sem hefur verið langbesti leikmaður liðsins á tímabilinu.
Hannes Sigurðsson er orðinn löglegur fyrir leik gegn Lilleström á sunnudag en Sandnes er með tíu stig í neðsta sæti, átta stigum frá öruggu sæti.