08.08.14 - 18:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Jesus Gamez til Atletico Madrid (Staðfest)

Jesus Gamez.

Mynd: Getty Images

Jesus Gamez.

Mynd: Getty Images
Spánarmeistarar Atletico Madrid hafa fengið til sín bakvörðinn Jesus Gamez frá Malaga.
Gamez skrifaði undir þriggja ára samning við Atletico liðið en hann hefur verið hjá Malaga allan sinn feril og alls spilað 266 deildarleiki fyrir liðið.
Atletico Madrid liðið þurfti að styrkja vörnina sína eftir að Felipe Luiz fór til Chelsea.
Joshuha Guilavogui er hins vegar farinn frá Atletico til Wolfsburg á tveggja ára samning.
Hinn 23 ára Guilavogui kom til liðsins frá St Etienne á síðustu leiktíð en náði ekki að vinna sér inn sæti í liðinu.