08.08.14 - 14:49
Daníel Freyr Jónsson
Pepe Reina til FC Bayern (Staðfest)

Pepe Reina.

Mynd: Getty Images

Pepe Reina.

Mynd: Getty Images

Spænski markvörðurinn Pepe Reina er genginn í raðir FC Bayern frá Liverpool og skrifaði hann undir þriggja ára samning.
Kaupverðið er talið nema tveimur milljónum punda, en þessi 31 árs gamli leikmaður lék með Napoli sem lánsmaður á síðustu leiktíð.
Kaupverðið er talið nema tveimur milljónum punda, en þessi 31 árs gamli leikmaður lék með Napoli sem lánsmaður á síðustu leiktíð.
Reina var keyptur til Liverpool frá Villarreal árið 2005. Hann var aðalmarkvörður liðsins í átta ár og spilaði alls 394 leiki í búningi Rauða hersins.
Ljóst er að Reina mun gegna varahlutverki hjá Bayern þar sem Manuel Neuer stendur öllu jafna í marki liðsins.
Ljóst er að Reina mun gegna varahlutverki hjá Bayern þar sem Manuel Neuer stendur öllu jafna í marki liðsins.
