08.08.14 - 09:30
Daníel Freyr Jónsson
Robinho aftur til Santos (Staðfest)

Robinho.

Mynd: Getty Images

Robinho.

Mynd: Getty Images
Brasilíumaðurinn Robinho er genginn í raðir Santos á árslöngum lánssamningi frá AC Milan.
Þetta er í þriðja sinn á ferlinum sem Robinho verður til mála hjá uppeldisfélagi sínu, en eftir að hafa komið upp í gegnum unglingastarf félagsins var hann seldur til Real Madrid fyrir háa upphæð árið 2005.

Hann náði hinsvegar aldrei að standast undir þeim gríðarlegu væntingum sem gerðar voru til hans hjá Madrid og fór hann til Manchester City þremur árum síðar. Lék hann síðan með Santos sem lánsmaður áður en Milan keypti hann fyrir fjórum árum.
Það hefur legið lengi í loftinu að Robinho yfirgæfi Milan í sumar og var sterkur orðrómur um að hann myndi fara í MLS-deildina. Þessi þrítugi framherji mun hinsvegar eyða næsta árinu í heimalandi sínu.