Fotbolti.net
08.08.14 - 07:00
Daníel Freyr Jónsson

Santiago Vergini aftur til Sunderland (Staðfest)

Santiago Vergini.

Santiago Vergini.

Canon

Mynd: Heimasíða Sunderland

Argentínski varnarmaðurinn Santiago Vergini mun áfram leika með Sunderland á komandi leiktíð sem lánsmaður frá Buenos Aires.
Vergini var á láni hjá Sunderland á síðustu leiktíð. Hann kom þar við sögu í 16 leikjum og hjálpaði liðinu að forðast fall úr ensku úrvalsdeildinni.

Vergini er 26 ára gamall hægri bakvörður sem einnig getur leyst stöðu miðvarðar og á hann að baki einn leik með argentínska landsliðinu.

Um er að ræða sjötta leikmanninn sem Sunderland fær í sumar.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.