Fotbolti.net
08.08.21 - 12:16
Brynjar Ingi Erluson

Aston Villa fær Tuanzebe á láni frá Man Utd (Staðfest)

Axel Tuanzebe

Axel Tuanzebe

Canon

Mynd: Heimasíða Aston Villa

Axel Tuanzebe er genginn í raðir Aston Villa frá Manchester United á láni út þetta tímabil.
Tuanzebe er 23 ára gamall og þekkir vel til hjá Aston Villa en hann hjálpaði liðinu að komast aftur upp í ensku úrvalsdeildina árið 2019.

Hann hefur spilað 29 leiki með United síðustu tvö tímabil og ákvað því að yfirgefa félagið á láni til að fá meiri spiltíma.

Varnarmaðurinn sterki verður á láni út þetta tímabil en hann skrifaði undir framlengingu á samningi sínum við United í kjölfarið.

Tuanzebe er nú samningsbundinn United til 2023 með möguleika á að framlengja um annað ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.