Fotbolti.net
08.08.21 - 09:39
Brynjar Ingi Erluson

Messi fær 40 milljónir evra í árslaun - Coutinho til Tottenham?

Lionel Messi er líklega á leið til PSG

Lionel Messi er líklega á leið til PSG

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Slúðurpakkinn er mættur á þessum fína sunnudegi en það er nóg um að vera. Harry Kane gæti farið frá Tottenham og Lionel Messi mun tilkynna ákvörðun sína um að fara frá Barcelona eftir 21 árs feril þar.


Tottenham mun íhuga það að selja Harry Kane til Manchester City ef félagið leggur fram 120 milljón punda tilboð + 20 milljónir punda í bónusgreiðslur. (Star)

Lionel Messi hefur komist að samkomulagi við Paris Saint-Germain um að gera tveggja ára samning við félagið en það er búist við því að hann muni opinberlega tilkynna fréttirnar á blaðamannafundi í dag. (Le Parisien)

Ef Messi ákveður að fara til PSG þá mun hann þéna 40 milljónir evra í árslaun. (L'Equipe)

Þessi félagaskipti gætu reynst Manchester United vel en félagið er að eltast við Eduardo Camavinga, leikmann Rennes, en hann hefur verið orðaður við PSG undanfarnar vikur. (Star)

Sergio Aguero (33), verður áfram hjá Barcelona, þrátt fyrir fréttir um að hann ætlaði sér að fara þar sem Lionel Messi er á förum frá félaginu. (Marca)

Arsenal er að skoða það að fá Bernardo Silva (26) frá Manchester City en hann hefur tjáð City að hann vilji fara frá félaginu í sumar. (Mirror)

Silva er að undirbúa sig fyrir samtal við Pep Guardiola, stjóra Man City, en hann vill helst af öllu fara til Barcelona. (Sun)

City er reiðubúið að bjóða Tottenham að fá Silva sem hluta af kaupverðinu upp í Harry Kane, frekar en að bjóða 150 milljónir punda í enska framherjann. (Daily Mail)

Ítalska meistaraliðið Inter er að undirbúa sig undir það að missa Romelu Lukaku til Chelsea. Félagið vill tvo framherja, þá Tammy Abraham (23) og Duvan Zapata (30 frá Atalanta. Þá er Edin Dzeko (35), einnig á listanum. (Sky Sport Italia)

Arsenal og West Ham hafa einnig áhuga á Abraham en Atalanta mun einungis bjóða í framherjann ef Inter ákveður að taka Zapata frá þeim. (Fabrizio Romano)

Arsenal ætlar í viðræður við Kieran Trippier (30), leikmann Atlético Madríd, eftir að Manchester United tókst ekki að komast að samkomulagi við Atlético um kaupverð. (Sun)

Þá eru sögur um það að Inter ætli sér að fá Anthony Martial til að leysa Lukaku af hólmi. Ítölsku meistararnir vilja fá franska framherjann á láni. Everton hefur einnig áhuga á Martial. (Mirror)

Aston Villa skoðaði þann möguleika að selja Jack Grealish til Real Madrid eða Manchester United áður en það náði samkomulagi við Manchester City fyrir 100 milljónir punda. (Athletic)

Tottenham er orðað við Philippe Coutinho (29), leikmann Barcelona en það fer þó allt eftir því ef félagið selur Harry Kane. (Mundo Deportivo)

Barcelona er þegar búið að bjóða Everton að fá Coutinho en það mun að öllum líkindum hafna tækifærinu á að fá þennan fyrrum leikmann Liverpool. (Liverpool Echo)

Atlético Madríd er nálægt því að ganga frá viðræðum við Rafa Mir (24), leikmanni Wolves. Hann gerir fjögurra ára samninga við spænska félagið. (Marca)

Brighton vonast til að fá Eddie Nketiah (22), framherja Arsenal, fyrir 20 milljónir punda. (Sun)

Burnley gengur ill að ná samkomulagi við RB Leipzig um Ademola Lookman (23). Enska félagið gæti hætt við Lookman og einbeitt sér að Maxwel Cornet (24), leikmanni Lyon. (Sun)

West Ham er þá enn í viðræðum við Nikola Milenkovic (23), varnarmann Fiorentina á Ítalíu, en það gengur illa að ganga að skilyrðum leikmannsins. (90min)

Newcastle United hefur spurst fyrir um Nat Phillips (24), varnarmann Liverpool. (Athletic)

Leeds United er að undirbúa nýtt og endurbætt tilboð í Lewis O'Brien (22), miðjumann Huddersfield Town í ensku B-deildinni. (Football Insider)

Spænska félagið Granada er að ganga frá samningum við Sergio Romero, fyrrum markvörð Manchester United, en hann er án félags eftir að samningur hans við United rann út í júlí. (Ideal)

Liverpool hefur komist að samkomulagi við Newcastle United um kaup á Bobby Clark (16). Tottenham hafnaði því að fá hann fyrr á þessu ári. (Football Insider)
Philippe Coutinho er orðaður við Everton og Tottenham

Philippe Coutinho er orðaður við Everton og Tottenham

Canon

Mynd: Getty Images

Harry Kane gæti farið til Man City fyrir 120 milljónir punda + 20 milljónir í bónusgreiðslur

Harry Kane gæti farið til Man City fyrir 120 milljónir punda + 20 milljónir í bónusgreiðslur

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.