08.08.21 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ravel Morrison gerir eins árs samning við Derby (Staðfest)

Ravel Morrison var kynntur á heimasíðu Derby í gær

Mynd: Derby County

Enski miðjumaðurinn Ravel Morrison skrifaði í dag undir eins árs samning við enska B-deildarfélagið Derby County.
Morrison, sem er 28 ára gamall, var talinn eitt mesta efni Englands fyrir tíu árum síðan er hann var á mála hjá Manchester United.
Sir Alex Ferguson, fyrrum stjóri Man Utd, var afar hrifinn af Morrison og sagði hann hæfileikaríkasta leikmann sem hann hafði þjálfað. Það var ekki nóg, því hausinn var ekki fastskrúfaður á miðjumanninum.
Slæmur félagsskapur utan vallar kom í veg fyrir einbeitingu á vellinum og hefur ferill hans verið vonbrigði miðað við þá hæfileika sem hann hafði en hann fær nú tækifæri með Derby County eftir að hafa spilað með tíu mismunandi félögum á tólf ellefu ára atvinnumannaferli.
Hann hefur síðustu vikur æft með lærisveinum Wayne Rooney og skrifaði svo í dag undir eins árs samning.
Derby spilaði fyrsta leikinn í B-deildinni í dag en liðið gerði 1-1 jafntefli við Huddersfield Town.