Portúgalski leikmaðurinn Goncalo Guedes hefur samþykkt að ganga í raðir Wolves frá Valencia.
Guedes er 25 ára gamall og hefur spilað fyrir Valencia frá 2018, eða síðan hann kom frá Paris Saint-Germain í Frakklandi. Þar áður lék hann með Benfica í heimalandinu.
Hann er fastamaður í portúgalska landsliðinu og á að baki 32 leiki og 7 mörk fyrir liðið.
Gennaro Ivan Gattuso, þjálfari liðsins, staðfesti í gær að hann væri á förum, en hann hefur nú samþykkt að ganga til liðs við Wolves í ensku úrvalsdeildinni.
Guedes flýgur til Englands í dag og mun gangast undir læknisskoðun áður en hann skrifar undir langtímasamning. Kaupverðið er í kringum 27 milljónir punda.
Athugasemdir