Fotbolti.net
08.09.20 - 17:20
Elvar Geir Magnússon

Byrjunarlið Íslands í Belgíu: Sjö breytingar - Andri Fannar byrjar

Ari Freyr Skúlason með fyrirliðabandið

Andri Fannar Baldursson.

Andri Fannar Baldursson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Belgía mætir Íslandi í Þjóðadeildinni 18:45 en Pólverjinn Pawel Raczkowski dæmir leikinn. Belgía vann 2-0 útisigur gegn Danmörku á Parken um helgina. Belgar eru eitt besta landslið heims, reyndar það besta samkvæmt styrkleikalista FIFA.

Við Íslendingar töpuðum naumlega fyrir Englandi á laugardaginn eins og lesendur vita vel.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum

Ögmundur byrjar í markinu en Hannes Þór Halldórsson tekur ekki þátt í þessum leik. Hólmar Örn Eyjólfsson og Jón Guðni Fjóluson mynda miðvarðaparið og Ari Freyr Skúlason er fyrirliði í dag.

Hinn átján ára Andri Fannar Baldursson, leikmaður Bologna, byrjar á miðjunni og fremstir eru Hólmbert Aron Friðjónsson og Albert Guðmundsson.

Byrjunarlið Íslands (4-4-2):
Ögmundur Kristinsson (m)

Hjörtur Hermannsson
Hólmar Örn Eyjólfsson
Jón Guðni Fjóluson
Ari Freyr Skúlason (f)

Arnór Sigurðsson
Andri Fannar Baldursson
Guðlaugur Victor Pálsson
Birkir Bjarnason

Hólmbert Aron Friðjónsson
Albert Guðmundsson

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum
Ari Freyr Skúlason er fyrirliði.

Ari Freyr Skúlason er fyrirliði.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.