Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 08. september 2021 16:00
Elvar Geir Magnússon
Camavinga mættur á æfingasvæði Real Madrid
Mynd: Getty Images
Eduardo Camavinga er mættur á æfingasvæði Real Madrid eftir að hafa verið keyptur frá Rennes á gluggadeginum.

Spurning er hvort þessi 18 ára stórefnilegi miðjumaður verði með gegn Celta Vigo um helgina.

Frumsýningarpartíið gæti allavega ekki verið betra en Real Madrid spilar sinn fyrsta heimaleik á tímabilinu og snýr aftur á Santiago Bernabeu eftir endurbætur.

Kaupverðið er talið 31 milljón evra plús árangurstengdar greiðslur. Hann skrifaði undir fimm ára samning við félagið.

Þrátt fyrir ungan aldur hefur Camavinga leikið 70 leiki fyrir Rennes í efstu deild í Frakklandi. Hann á einnig þrjá leiki fyrir A-landslið Frakklands.

Camavinga er nýkominn frá Færeyjum þar sem U21 landslið Frakka gerði jafntefli við heimamenn. Camavinga var langt frá sínu besta eins og samherjar hans en jöfnunarmark færeyska liðsins var vægast sagt skondið.


Athugasemdir
banner