08.10.14 - 17:10
Magnús Már Einarsson
Þórður Þórðar tekur við U19 ára landsliði kvenna (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórður Þórðarson hefur verið ráðinn þjálfari hjá U19 kvenna og tekur við af þeim Ólafi Þór Guðbjörnssyni og Úlfari Hinrikssyni, en Úlfar stjórnaði liðinu í síðasta verkefni í Litháen.
Þórður er með KSÍ A gráðu og hefur þjálfað bæði meistaraflokk karla og kvenna hjá ÍA í efstu deild.
Þórður gerði garðinn frægan sem markvörður, lengst af með ÍA en einnig lék hann með Val og KA sem og að hann lék sem atvinnumaður í Svíþjóð. Þórður er einnig markvarðaþjálfari hjá U21 landsliði karla og er staddur með liðinu um þessar mundir í Danmörku.
Þórður mun taka strax til starfa og mun vera með úrtaksæfingar hjá U19 kvenna um komandi helgi.