08.10.26 - 18:27
Brynjar Ingi Erluson
Jói Berg gagnrýnir taktíkina gegn Eistum - „Það er mesta áskorunin fyrir Arnar“

Jóhann Berg Guðmundsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari íslenska landsliðsins

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Jóhann Berg Guðmundsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Berg Guðmundsson, fyrrum leikmaður íslenska landsliðsins, gagnrýnir taktíkina sem Ísland spilaði gegn Eistlandi í Þjóðadeildinni á dögunum.
Lestu um leikinn: Eistland 0 - 0 Ísland
Íslenska liðið var í basli gegn Eistum og gerði sitt annað jafntefli við lið sem situr töluvert neðar á styrkleikalista FIFA.
Jóhann horfði á leikinn og var ekki sáttur við leikaðferðina. Hann ræddi hana í nýjum þætti af hlaðvarpinu Sjöan, þar sem hann og Hörður Snævar Jónsson fara yfir það helsta í boltanum, og sagði erfitt að læra inn á kerfið sem Arnar vill spila.
„Svo kemur aftur Eista-leikurinn. Ekki alveg nógu gott og Eistarnir spiluðu nokkuð vel. Maður verður að gefa þeim það, en ef við förum aðeins yfir taktíkina þá fannst mér hún ekki nógu góð.“
„Við vitum öll hvaða fótbolta Arnar vill spila. Það er þessi Pep Guardiola fótbolti, það er mikið af færslum og eins og í þessum leik byggjum við upp með þrjá hafsenta og búum til box í miðjunni. Svo erum við með menn á köntunum en að hafa Gulla úti hægra megin sem þannig séð kantmann. Við vitum að við eigum að hafa kantmann og ef þú ætlar að spila þetta verður þú að hafa tvo alvöru kantmenn.“
„Ég þekki þetta vel hjá Burnley. Við vorum oft með kantmenn en leystum þetta box í miðjunni með að koma með bakvörð þangað en við vorum með prófíl í það. Það sem er erfiðast fyrir Arnar þegar þú ert að spila svona fótbolta er að þú ert bara með ákveðið 'pool' af leikmönnum. Þegar Vincent Kompany tekur við Burnley skiptir hann út mest megnis af leikmönnunum, menn sem voru búnir að spila í úrvalsdeildinni í mörg ár og voru því miður: 'Þú ert ekki að fara spila þennan fótbolta fyrir mig'. Nick Pope var seldur virkilega ódýrt því þeir vildu losna við hann sem fyrst því hann var ekki að fara spila þennan Kompany-fótbolta.“
„Það er mesta áskorunin fyrir Arnar að í fyrsta lagi getur hann ekki valið sína leikmenn og öðru lagi eru meiðsli alltaf að fara koma inn í þetta og þá þarf að fara kenna nýjum leikmönnum ákveðnar stöður. Þetta er virkilega erfitt og ef við ætlum að halda þessu til streitu að fullkomna þetta þá mun það taka langan tíma.“
„Þegar þú ert að byggja upp með þrjá hafsenta þá þurfa þeir að koma upp með boltann en báðir miðjumennirnir okkar voru að koma allt of neðarlega og þá er tengingin farin. Þess vegna þurfa þeir að koma með boltann, bíða eftir pressunni og finna miðjumennina, koll af kolli ertu kominn upp völlinn. Við vorum ekki að ná því og þá er þetta orðið virkilega erfitt og kemst ekkert tempó í leikinn.“
Þá var einnig talað um leikinn gegn Lúxemborg, sem var líklega besta frammistaða íslenska liðsins í glugganum.
„Það er búið að gefa okkur þetta 'blueprint' hvernig á að komast á stórmót, en við erum ekki á þeirri vegferð núna. Við ætlum að spila öðruvísi fótbolta og allt í góðu með það, en það mun taka tíma því þetta erfitt og flókið kerfi að spila fyrir leikmenn að ná. Það eru leikmenn sem ná þessu fljótt en tekur aðra lengri tíma. Í landsliðsfótbolta er stuttur tími og í þessum glugga eru fjórir leikir, kemur þreyta í hópinn og skipta mikið af leikmönnum til að halda þeim ferskum. Mér fannst þessi Lúxemborg-leikur þægilegur.“
„Við vorum með tvo framherja sem voru aðeins að vinna saman, en í síðastsa leik á móti Eistlandi var Andri að droppa of mikið niður og ekki sama tengin hjá honum og Orra. Ef þú ert með svona framherja vil ég bara sjá þá vinna saman og gæjarnir í kringum þá að vinna seinni boltana, en við erum ekki á þeirri vegferð. Við erum að fara spila meiri fótbolta en hvort það muni takast er erfitt að segja. Það mun taka langan tíma en við höfum ekki langan tíma til að komast á þetta Evrópumót,“ sagði Jóhann í Sjöunni.