08.11.13 - 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Björgvin Stefánsson í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)

Björgvin Stefánsson (t.v.) er genginn til liðs við Djúpmenn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Björgvin Stefánsson (t.v.) er genginn til liðs við Djúpmenn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Björgvin Stefánsson er genginn til liðs við BÍ/Bolungarvík frá Haukum, en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Björgvin er 19 ára gamall, en þrátt fyrir ungan aldur á hann að baki 56 leiki með meistaraflokki Hauka og hefur hann skorað í þeim átta mörk á síðustu tveimur árum.
Í sumar skoraði Björgvin 20 mörk í 16 leikjum með 2. flokki Hauka og var hann markahæstur í liðinu.
Björgvin á sex landsleiki að baki fyrir U19 landslið Íslands.
Í sumar skoraði Björgvin 20 mörk í 16 leikjum með 2. flokki Hauka og var hann markahæstur í liðinu.
Björgvin á sex landsleiki að baki fyrir U19 landslið Íslands.
