Fotbolti.net
08.11.15 - 14:10
Arnar Geir Halldórsson

Kit Symons rekinn frá Fulham (Staðfest)

Rekinn

Rekinn

Canon

Mynd: Getty Images

Kit Symons hefur verið rekinn úr starfi knattspyrnustjóra hjá enska B-deildarliðinu Fulham að því er fram kemur á heimasíðu félagsins.
Fulham hefur gengið illa upp á síðkastið og eftir 5-2 tap gegn Birmingham á heimavelli í gær var þessi ákvörðun tekin.

Fulham er í 12.sæti Championship deildarinnar en liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni fyrir tveim árum.

Symons entist rétt rúmlega ár í starfi en hann tók við liðinu af Felix Magath í september á síðasta ári.

Symons er þriðji stjórinn til að fjúka í Championship deildinni í þessari viku en áður hafði Chris Ramsey verið rekinn frá QPR og Chris Powell frá Huddersfield.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.