Fotbolti.net
08.11.21 - 15:03
Elvar Geir Magnússon

Eddie Howe nýr stjóri Newcastle (Staðfest)

Eddie Howe er nýr stjóri Newcastle.

Eddie Howe er nýr stjóri Newcastle.

Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle hefur staðfest ráðningu á Eddie Howe sem er nýr stjóri félagsins. Hann skrifar undir samning sem gildir til sumarsins 2024.

Newcastle varð ríkasta fótboltafélag heims þegar Sádi-Arabarnir keyptu félagið en Howe bíður erfitt verkefni því liðið er í fallsæti ensku úrvalsdeildarinnar og hefur enn ekki unnið leik.

Bráðabirgðastjórinn Graeme Jones hefur stýrt Newcastle síðan Steve Bruce var rekinn.
Howe er 43 ára og hefur verið atvinnulaus síðan hann yfirgaf Bournemouth í fyrra. Hann náði eftirtektarverðum árangri með Bournemouth og kom liðinu úr D-deildinni og upp í úrvalsdeildina.

„Það er mikill heiður að verða stjóri félags sem er með þessa stöðu og sögu. Þetta er stór dagur fyrir mig og fjölskyldu mína," segir Howe.

„Þetta er stórkostlegt tækifæri. Það er líka mikil vinna framundan og ég get ekki beðið eftir því að komast á æfingasvæðið til að vinna með leikmönnum. Ég vil þakka eiendum félagsins fyrir þetta tækifæri og stuðningsmönnum fyrir þær móttökur sem ég hef þegar fengið að kynnast. Ég er spenntur fyrir því að byrja vegferð okkar saman."

Eigendur Newcastle leituðu til Howe eftir að Unai Emery afþakkaði að taka við stjórnartaumunum.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.