08.11.21 - 16:35
Brynjar Ingi Erluson
Gonzalo Zamorano í Selfoss (Staðfest)

Gonzalo Zamorano spilar með Selfyssingum næstu tvö árin

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Spænski framherjinn Gonzalo Zamorano er genginn í raðir Selfoss frá ÍBV og gerir hann tveggja ára samning við félagið en þetta kemur fram í tilkynningu frá Selfyssingum í dag.
Gonzalo er 26 ára gamall og kom fyrst til landsins árið 2017 og spilaði þá fyrir Huginn í 2. deildinni. Þar gerði hann 16 mörk í 22 leikjum áður en hann gekk til lið við Víking Ólafsvík eftir tímabilið.
Hann hefur einnig spilað fyrir ÍA og nú síðast ÍBV en hann gerði þrjú mörk í tíu deildarleikjum í sumar.
Gonzalo yfirgaf ÍBV eftir tímabilið en var ekki lengi að finna nýja áskorun og hefur nú samið við Selfoss til næstu tveggja ára.
„Ég er hrikalega ánægður með það að vera kominn á Selfoss. Ég er búinn að tala við fólk í kringum mig sem þekkir klúbbinn vel og það töluðu allir vel um staðinn og liðið. Aðstæðurnar á Selfossi eru frábærar og ég vona að ég nái að hjálpa liðinu að ná sínum markmiðum," sagði Gonzalo við undirskrift.
Hann hefur hafið undirbúningstímabilið á Spáni og er væntanlegur til landsins í byrjun næsta árs. Selfoss hafnaði í 8. sæti Lengjudeildarinnar á síðasta tímabili.