Fotbolti.net
08.11.21 - 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Xavi staðfestir áhuga Brasilíu - Átti að taka við eftir HM

Xavi staðfestir áhuga Brasilíu - Átti að taka við eftir HM
Canon

Mynd: EPA

Xavi var kynntur sem nýr stjóri Barcelona í dag. Hann kemur frá Al Sadd í Katar sem hann þjálfaði frá 2019.
Það var fjölmennt á Camp Nou er hann skrifaði undir samning við félagið.

Hann sagði frá því að hann hafi átt í viðræðum við knattspyrnusamband Brasilíu um að taka við landsliðinu.

„Ég talaði við knattspyrnusamband Brasilíu, við töluðum um að ég myndi vera aðstoðarþjálfari Tite og taka við af honum síðan eftir HM 2022."

Hann hafði hinsvegar augastað á Barcelona.

„En það var forgangsatriði fyrir mig að koma aftur til Barcelona sem þjálfari."

Hann gerir sér hinsvegar grein fyrir því að hann sé að koma á erfiðum tímum.

„Ég kem heim á erfiðum tímum - fjárhagslega og fótboltalega séð. Þetta er ekki besti tíminn en hvatning, ástríða og spenna stuðningsmanna mun koma okkur aftur á toppinn."

Sjá einnig:
Barca kaupir Xavi í stjórastólinn (Staðfest)
„Ég er að koma aftur heim"
25 þúsund mættu þegar Xavi var kynntur
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.