Fotbolti.net
08.11.24 - 22:07
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Championship: Watford aftur á sigurbraut

Championship: Watford aftur á sigurbraut
Canon

Mynd: Getty Images

<b>Watford 1 - 0 Oxford United</b>
1-0 Vakoun Issouf Bayo ('54 )

Watford komst aftur á sigurbraut í Championship deildinni þegar liðið lagði Oxford af velli í kvöld.

Vakoun Issouf Bayo skoraði eina mark leiksins eftir skyndisókn en honum tókst að koma boltanum í netið í annarri tilraun eftir að Jamie Cumming varði frá honum í fyrstu tilraun.

Watford tapaði gegn Swansea í síðustu umferð og er í 4. sæti með 25 stig eftir 15 umferðir en Leeds er stigi á undan og Sheffield United þremur stigum á undan.

Oxford vann hins vegar Hull í síðustu umferð eftir að hafa spilað átta leiki í röð án þess að vinna. Liðið er í 16. sæti með 17 stig.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1West Brom6+313
2West Ham6+511
3Swansea6+411
4QPR6+311
5Charlton Athletic6-111
6Middlesbrough5+310
7Bristol City5+210
8Millwall5+29
9Norwich6+19
10Sheffield Utd609
11Wolves5+38
12Watford6-18
13Southampton6+77
14Wrexham6+27
15Birmingham607
16Stoke City6-17
17Portsmouth5-16
18Blackburn6-25
19Lincoln City5-25
20Cardiff City6-34
21Derby County6-64
22Bolton6-64
23Burnley6-63
24Preston NE6-63
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.