09.01.14 - 10:03
Magnús Már Einarsson
Jay Bothroyd til Tælands (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Enski framherjinn Jay Bothroyd hefur gengið í raðir Muangthong United í Tælandi.
Bothroyd hefur verið án félags síðan samningur hans við QPR rann út síðastliðið sumar.
Bothroyd hóf feril sinn hjá Arsenal árið 1998 en gekk síðan í raðir Coventry.

Þessi 31 árs gamli leikmaður hefur síðan þá leikið með Blackburn, Charlton, Wolves, Stoke, Cardiff, Sheffield Wednesday sem og Perugia á Ítalíu.
Englendingurinn Scott Cooper tók við þjálfun Muangthong United á dögunum en Robbie Fowler var einnig spilandi þjálfari hjá liðinu árið 2011.