Fotbolti.net
09.01.14 - 14:54
Elvar Geir Magnússon

Mist Elíasdóttir í mark Aftureldingar (Staðfest)

Mist Elíasdóttir í mark Aftureldingar (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Kvennalið Aftureldingar hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi átök í úrvalsdeildinni í knattspyrnu en markvörðurinn Mist Elíasdóttir hefur gert tveggja ára samning við félagið.
Mist, sem er 25 ára gömul, hefur frá árinu 2009 stundað nám við Florida Institute of Technology í Bandaríkjunum og leikið með FIT Panthers í háskólaboltanum. Hún á að baki yfir 80 leiki með meistaraflokki FH, Keflavík, ÍR, KR og Breiðablik ásamt því sem hún hefur leikið með U17 og U19 ára liðum Íslands.

Mist var oftast allra markmanna í liði vikunnar í Pepsi-deildinni síðasta sumar.

„Aftureldingar liðið stefnir á að styrkja lið sitt enn fremur fyrir komandi átök í Pepsi-deildinni. Afturelding og Mosfellingar bjóða Mist velkomna í bæinn, með von um farsælt samstarf,\" segir í fréttatilkynningu frá Aftureldingu en liðið hafnaði í áttunda sæti síðasta tímabil.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.