Fotbolti.net
09.01.14 - 20:29
Alexander Freyr Tamimi

Pepe Mel ráðinn stjóri West Brom (Staðfest)

Pepe Mel er tekinn við West Brom.

Pepe Mel er tekinn við West Brom.

Canon

Mynd: Getty Images

West Bromwich Albion hefur ráðið Pepe Mel sem nýjan knattspyrnustjóra sinn, en þetta staðfesti félagið á heimasíðu sinni.
Spánverjinn skrifaði undir 18 mánaða samning við félagið og tekur við stjórnartaumunum af Keith Downing, sem hafði stýrt West Brom eftir að Steve Clarke var rekinn.

Mel hefur 14 ára reynslu af þjálfun á Spáni og stýrði síðast liði Real Betis, sem endaði í 7. sæti La Liga á síðustu leiktíð. Hann var hins vegar rekinn frá félaginu á þessu tímabili.

Keith Downing mun aftur taka við starfi aðstoðarþjálfara.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.