Fotbolti.net
09.01.14 - 17:30
Elvar Geir Magnússon

Sebastian Rode til Bayern í sumar (Staðfest)

Sebastian Rode til Bayern í sumar (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Bayern München hefur tryggt sér þjónustu annars leikmanns fyrir næsta tímabil en það er miðjumaðurinn Sebastian Rode sem kemur frá Eintracht Frankfurt á frjálsri sölu.
Rétt eins og Robert Lewandowski þá mun Rode mæta á Allianz Arena í sumar þegar samningur hans rennur út.

Bruno Hubner, íþróttastjóri Eintracht, hefur staðfest að samkomulag varðandi þennan 23 ára leikmann sé í höfn en hann hefur lengi verið orðaður við Bæjara.

Það er ljóst að það verður erfitt fyrir Rode að vinna sér inn sæti í byrjunarliði Bayern og flestir búast við því að hann verði bekkjarmatur.

Fyrir hjá Bayern er mögnuð sveit miðjumanna með þá Bastien Schweinsteiger, Javi Martinez, Thiago Alcântara, Mario Götze og Toni Kroos.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.