09.01.16 - 07:30
Arnar Geir Halldórsson
Chory Castro til Malaga (Staðfest)

Færir sig um set

Mynd: Getty Images

Færir sig um set

Mynd: Getty Images
Úrugvæski kantmaðurinn Chory Castro er genginn til liðs við spænska úrvalsdeildarliðið Malaga.
Castro gerir tveggja og hálfs árs samning við Malaga en hann sagði upp samningi sínum við Real Sociedad á dögunum eftir þriggja ára veru hjá Sociedad.
Þar áður spilaði Castro með Mallorca í La Liga en þessi 31 árs gamli leikmaður hefur leikið yfir 200 leiki í spænsku úrvalsdeildinni og skorað í þeim 35 mörk.
Malaga er fjórum sætum fyrir ofan Sociedad í La Liga þar sem liðið situr í 11.sæti.
„Castro er akkúrat leikmaðurinn sem við vorum að leita að. Hann er mjög reynslumikill og þekkir spænsku úrvalsdeildina vel, sagði Francesc Arnau, yfirmaður leikmannamála hjá Malaga.