09.01.16 - 12:39
Magnús Már Einarsson
Styrmir Erlendsson í Fylki (Staðfest)

Garðar Jóhannsson aðstoðarþjálfari, Styrmir Erlendsson og Hermann Hreiðarsson þjálfari.

Mynd: Fylkir

Fylkir hefur fengið miðjumanninn Styrmi Erlendsson til liðs við sig frá ÍR.
Styrmir skrifaði undir þriggja ára samning við Fylki í dag.

Styrmir er uppalinn Fylkismaður en hann steig sín fyrstu skref í meistaraflokki árið 2011 þegar hann spilaði fjóra leiki í Pepsi-deildinni og skoraði eitt mark, gegn KR á KR-velli.
Styrmir lék með ÍR og KFR sumarið 2013 áður en hann hélt til Svíþjóðar árið 2014.
Í fyrra var Styrmir í lykilhlutverki hjá ÍR í 2. deildinni en hann skoraði þrjú mörk í átján leikjum.
Hinn 22 ára gamli Stymir hefur nú gengið á ný til liðs við Fylki en hann hefur æft með liðinu í vetur. Styrmir hefur einnig skorað þrjú mörk í æfingaleikjum með Fylki í vetur gegn Þrótti, HK og Val.
„Við Fylkismenn bjóðum Stymma hjartanlega velkominn aftur heim,\" segir í tilkynningu frá Fylki.