09.02.13 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Tindastóll fær markvörð frá Fram (Staðfest)

Sigurður Hrannar Björnsson

Mynd: KSÍ

Sigurður Hrannar Björnsson

Mynd: KSÍ
Tindastóll í fyrstu deildinni hefur fengið til sín markvörðinn, Sigurð Hrannar Björnsson, frá Fram í Pepsi-deildinni.
Sigurður, sem er 19 ára gamall, er uppalinn í Fram, en hann hefur verið þriðji markvörður liðsins í Pepsi-deildinni síðustu þrjú árin.
Hann hefur æft með Tindastól undanfarnar vikur og spila nokkra æfingaleiki, en hann lék þá einn leik í Fótbolta.net mótinu.
Sigurður á þá einn leik að baki fyrir U19 ára landslið Íslands, en auk þess á hann tvo vináttuleiki að baki með yngri landsliðum.