09.02.14 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Andrés Þorleifsson til Falkenbergs FF (Staðfest)

Andrés Þorleifsson er búinn að semja við Falkenbergs FF

Mynd: Laget.se

Falkenbergs FF í sænsku úrvalsdeildinni hefur gengið frá kaupunum á Andrési Þorleifssyni frá BKV Norrtälje en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í dag. Hann gerir tveggja ára samning við félagið.
Andrés, sem er 25 ára gamall framherji, hefur leikið mest alla sína ævi í Svíþjóð en hann byrjaði að æfa knattspyrnu í Svíþjóð einungis fimm ára gamall.
Hann mun í annað sinn reyna fyrir sér í toppfélagi í Svíþjóð en hann var á mála hjá AIK árið 2006 og lék þar meðal annars nokkra leiki í Royal-deildinni, sem var mót fyrir sterkustu liðin í Skandinavíu.
Andrés hefur gert magnaði hluti í sænsku neðri deildunum undanfarin ár en tölfræðin segir allt. Hann hefur gert 107 mörk í 69 leikjum en íslenski framherjinn hefur farið á reynslu hjá sterkum félögum undanfarin ár.
Hann fór meðal annars á reynslu til Heerenveen eftir síðustu leiktíð en hann fékk einmitt gullskóinn í Svíþjóð fyrir árangur sinn með Norrtälje. Hann stóð sig vel hjá Heerenveen en fékk þó ekki samning.
Henrik Larsson er þjálfari Falkenbergs FF en hann fékk Andrés á reynslu til félagsins og þakkaði íslenski framherjinn fyrir sig og skoraði tvö mörk og lagði upp eitt í sigri á Halmia í fyrsta æfingaleik. Hann lék þá gegn Lyngby í gær en hann herur gert tveggja ára samning við Falkenbergs FF sem kom sér upp í sænsku úrvalsdeildina á síðustu leiktíð.
Það verður spennandi að fylgjast með framherjanum en ljóst er að þessi félagaskipti hans koma til með að opna augu Lars Lagerback, þjálfara íslenska landsliðsins