09.02.14 - 07:00
Alexander Freyr Tamimi
Andri Már í Selfoss (Staðfest)

Andri Már samdi við Selfoss.

Mynd: Sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Andri Már samdi við Selfoss.

Mynd: Sunnlenska.is/Guðmundur Karl
Andri Már Hermansson skrifaði í gær undir tveggja ára samning við Selfoss, en hann kemur til félagsins frá Fylki.
Andri Már, sem er miðjumaður, hefur undanfarið spilað með Selfossi og lék meðal annars með liðinu í sigrinum gegn HK í úrslitum Fótbolta.net mótsins á föstudagskvöld.
Andri er uppalinn hjá Fylki og hefur spilað 19 leiki fyrir Árbæingana í efstu deild, en í fyrrasumar lék hann einnig fimm leiki með KF í 1. deild áður en Fylkir kallaði hann til baka úr láni.
Andri Már á auk þess að baki tíu landsleiki fyrir U17 og U19 ára lið Íslands.