Fotbolti.net
09.02.14 - 10:55
Hafliði Breiðfjörð

Dominic Adams til ÍBV (Staðfest)

Dominic Adams er orðinn leikmaður ÍBV.

Dominic Adams er orðinn leikmaður ÍBV.

Canon

Mynd: Aðsend

ÍBV skrifaði undir 2 ára samning við Dominic Adams í dag. Dominic er 25 ára gamall kantmaður og er frá Trinidad &Tobago.
Dominic lék fyrstu árin sín í Trinidad &Tobago með góðum árangri og var þar m.a. í leikmannahópi U-17 ára landsliðsins, hann lék svo í háskólaboltanum í Bandaríkjunum og æfði sem ungur leikmaður með nokkrum félögum svo sem Wolverhampton Wanderers, Birmingham City og Watford.

Í Bandaríkjunum hefur hann spilað í PDL deildinni m.a. með Vermont Voltage.

Dominic kemur til ÍBV eftir að hafa verið til reynslu hjá félaginu fyrir stuttu þar sem hann lék vel m.a. gegn Haukum í Fótbolti.net mótinu og í vináttuleik gegn Val.

Dominic er hraður og duglegur kantmaður með góða boltameðferð sem líður jafnvel hvort sem er á hægri eða vinstri kanti.

,,ÍBV væntir mikils af Dominic og býður hann velkominn til félagsins. Töluverðar breytingar hafa orðið á leikmannahópi ÍBV frá í fyrra og það er ætlun og metnaður félagsins að styrkja leikmannahópinn enn frekar á næstunni.,\" segir í tilkynningu félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.