Fotbolti.net
09.02.17 - 18:48
Magnús Már Einarsson

Hilmar í Þrótt Voga (Staðfest)

Hilmar í Þrótt Voga (Staðfest)
Canon

Mynd: Þróttur Vogum

Þróttur Vogum hefur fengið Hilmar Þór Hilmarsson til liðs við sig fyrir átökin í 3. deildinni í sumar.
„Það er með stolti sem við tilkynnum að Hilmar Þór Hilmarsson verður hjá Þrótti Vogum næstu tvö árin,\" segir í tilkynningu frá Þrótti.

„Hilmar sem kemur frá Fram, kom á láni til okkar Þróttara á síðasta ári og var kosinn leikmaður ársins af stuðningsmönnum félagsins.\"

Hilmar er 26 ára frá Garðabæ og hefur spilað með Stjörnunni, Víkingi Ó, Keflavík, Fram og Gróttu á sínum ferli.

Samtals hefur Hilmar skorað fimm mörk í 113 deildar og bikarleikjum á ferli sínum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.