09.02.22 - 21:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðfinnur Þór í Aftureldingu (Staðfest)

Guðfinnur hér fyrir miðju.

Mynd: Afturelding

Guðfinnur hér fyrir miðju.

Mynd: Afturelding

Afturelding hefur krækt í miðjumanninn Guðfinn Þór Leósson fyrir komandi tímabil.
Guðfinnur er 22 ára gamall miðjumaður, uppalinn hjá ÍA, en hann kemur til Aftureldingar frá Víkingi Ólafsvík, þar sem hann spilaði 20 leiki í Lengjudeildinni síðasta sumar.
Guðfinnur lék með Kára í 2. deild frá 2018 til 2020, en í fyrra steig hann sín fyrstu skref í næst efstu deild.
„Afturelding býður Guðfinn hjartanlega velkominn í Mosfellsbæinn," segir í tilkynningu Aftureldingar.
Afturelding hafnaði í tíunda sæti Lengjudeildarinnar á síðustu leiktíð.