09.02.22 - 15:30
Hafliði Breiðfjörð
Leiknir fær kantmann sem á fimm landsleiki fyrir Pólland (Staðfest)

Makuszewski í landsleik með Póllandi.

Mynd: Getty Images

Hann lék síðast fyrir Jagiellonia Białystok.

Mynd: Getty Images

Makuszewski í landsleik með Póllandi.

Mynd: Getty Images
Leiknir hefur samið við pólska kantmanninn Maciej Makuszewski og mun hann spila fyrir Breiðholtsliðið á komandi tímabili. Makuszewski er 32 ára og býr yfir mikilli reynslu.
Hann hefur leikið fimm landsleiki fyrir Pólland og var í 35 manna úrtakshóp Póllands fyrir HM í Rússlandi 2018. Hann var þó ekki hluti af lokahópnum.
Hann lék síðast fyrir Jagiellonia Białystok en 2016-2020 var hann hjá hinu öfluga liði Lech Poznan.

„Leiknir bindur miklar vonir við Makuszewski í sumar og vonast til þess að koma hans muni auka áhuga á félaginu meðal pólska samfélagsins á Íslandi," segir í fréttatilkynningu Leiknis sem birt er á heimasíðu félagsins.
Nú stendur yfir fréttamannafundur í félagsheimili Leiknis í Breiðholti.
Leiknir hafnaði í áttunda sæti í efstu deild í fyrra og leikur í fyrsta sinn tvö ár í röð í deild þeirra bestu. Félagið hefur unnið markvisst að því að styrkja sóknarlínuna að undanförnu og fékk dönsku leikmennina Mikkel Jakobsen og Mikkel Dahl en sá síðarnefndi varð markakóngur færeysku deildarinnar í fyrra.
Þá fékk félagið hinn unga og spennandi Róbert Hauksson frá Þrótti. Áður hafði félagið endurheimt tvo uppalda leikmenn; varnarmanninn Óttar Bjarna Guðmundsson og miðjumanninn Sindra Björnsson.